Já nei nei ég
er nú enn á lífi ef þið voruð að velta því fyrir ykkur
Ég
er bara búin að vera eitthvað voðalega löt við þessa
bloggvitleysu eins og þið hafið nú kannski tekið
eftir.
Það hefur nú ekki
neitt ofsalega mikið drifið á mína daga svo það er kannski ekki
neitt rosa mikið að segja frá en ég skal gera mitt besta við að
rita nokkur vel varin orð niður hérna fyrir ykkur að lesa

Ég er búin að fá mér
lögfræðing... einhver lögfræðingur sem hann Dabbi minn benti mér á
og mér líst bara alveg ágætlega á hann held ég bara. Er nú reyndar
bara búnað hitta hann einu sinni en það var nóg. Ég er sem sagt
komin með lögfræðing útaf slysinu sem ég lenti í í desember. Hann
ætlar að hjálpa mér t.d. að fá allan lækniskostnað og
sjúkraþjálfunina borgaða og svo fer hann í að tala við
heimilislæknirinn minn og svo tryggingarfélagið varðandi bætur og
allt það dæmi en það verður ekkert gert í því fyrr en í fyrsta lagi
ári frá slysi eða sem sagt í kringum 3 des á þessu ári svo ég verð
bara að bíða og sjá og athuga hvort ég fari ekki bara að lagast af
þessum bakverkjum
Ég er sem sagt enn í sjúkraþjálfun og er
hún nú ekkert að gera neitt ofsalega mikið fyrir mig þar sem ég er
bara alltaf með verki og get voða takmarkað gert. Ég er t.d.
hrikaleg eftir vinnuna og þá sérstaklega ef ég er á kvöldvakt og
svo morgunvakt strax daginn eftir en ég þrauka og mæti alveg í
vinnuna og svona. En ég er bara dugleg að taka verkjatöflur og er
ég á voltarin við verkjum. Ég er svo líka dugleg að fara til læknis
og láta fylgjast með mér og á ég að mæta til heimilislæknisins á
föstudaginn í næstu viku og þá fæ ég að heyra hvað hún vill gera í
þessum málum... hvort hún vilji eitthvað láta mynda mig eða hvað

En að allt öðrum
málum þá er ég búin að panta mér ferð til Costa del sol þann 4.
júlí næstkomandi og ætla að vera í 2 vikur með henni Siggu vinkonu.
Við fengum okkur stúdíóíbúð á hóteli sem heitir Bajondillo og er
bara alveg rétt við ströndina. Við þurfum bara að fara yfir eina
götu og þá bara er mar komin á ströndina. Þvílíkur lúxus verður
það. Svo held ég að bærinn sé bara í eitthvað um 10 mínútna
fjarlægð svo þetta verður bara þvílíkt stuð og ég vill helst bara
að sumarið komi á morgun svo þetta verði fljótlegra að líða
Ég
fæ í fyrsta skipti ever sumarfrí á launum og það alveg rúmar 4
vikur svo ég ætla að njóta þess í botn að liggja á ströndinni og
stikna á launum 
Helgin hjá mér hefur
annars bara verið góð og hef ég verið í fríi. Á föstudaginn var mér
hleypt aðeins fyrr úr vinnuni bara af því bara en ég var nú samt á
fullum launum alveg til 16. Bara lúxus. Ég fór svo um kvöldið með
henni Siggu að borða og svo til hennar Birnu þar sem skvísurnar
Birna, Marta, Alda og Oddný biðu eftir okkur. Við spiluðum svo bæði
Leanardo og Meistarann og vorum við að til um 2:30 þann
daginn.
Á
laugardeginum fórum við Sigga svo í smá bíltúr. Við stoppuðum fyrst
hjá Faxa sem er foss þarna rétt hjá Geysi. Eftir það var svo brunað
í Haukadal sem er bara líka þarna rétt hjá Geysi og þar var skoðuð
kirkjan sem er á staðnum. Þegar við vorum búnar að grandskoða okkur
um þar var farið á Gullfoss og teknar myndir eins og á öllum hinum
stöðunum
En þar sem var svo askoti kalt þá lögðum við ekki í það
að labba niður að fossinum heldur drifum við bara myndatökuna af og
hoppuðum inní bíl aftur og brunuðum á næsta stað en sá staður voru
Flúðir en ekkert var farið út úr bílnum þar. Við fórum svo að koma
okkur hægt í bæinn en fórum samt lengri leiðina því við keyrðum
yfir á Eyrarbakka og þaðan fórum við svo í bæinn. Við spiluðum svo
kana það kvöldið með stúlkunum Oddný og Svövu sem var bara þvílíkt
mikið stuð.
Í dag bauð hún Karen
mér og Gabríel með sér í leikhús á leikritið Karíus og Baktus. Hún
fór með Elvar litla strákinn sinn og átti auka miða svo hún bauð
okkur með. Ég bjóst nú ekki við því að hann Gabríel hefði
þolinmæðina í það að horfa á því hann er jú ekki nema 16 mánaða
guttinn en viti menn hann sat bara í fanginu á mér allan tíman.
Hann var reyndar ekkert alltof sáttur við Karíus og Baktus en um
leið og ég tók utan um hann þá hætti hann að skæla.... hann er svo
hugrakkur þessi litli gaur. Við fórum svo í inn í kringlu þegar
leikritinu lauk og leyfðum strákunum að hlaupa um. Við fórum svo í
Ævintýraland í kringlunni og vorum þar alveg heillengi að leyfa
þeim að fá sína útrás og leika sér og það var sko þvílíkt vinsælt.
Takk kærlega fyrir okkur Karen og takk fyrir lánið á stráknum Elva
Dögg 
Jæja ég held þetta
sé bara orðin ein stór ritgerð hérna hjá mér svo ég held ég láti
þetta nægja í bili 